Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

638/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017.

1. gr.

Á eftir 32. gr. b reglugerðarinnar bætist við ný grein, 32. gr. c svohljóðandi:

Útlendingastofnun er heimilt, á grundvelli sérstakrar beiðni eða að eigin frumkvæði, að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því að umsókn barst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 5. júlí 2019.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.