Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

521/2021

Reglugerð um bann við ónauðsynlegum ferðalögum frá skilgreindum hááhættusvæðum vegna COVID-19.

1. gr.

Til og með 31. maí 2021 er útlendingum, sem koma frá eða dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum á svæði þar sem 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa er 700 eða meira, eða nýgengi er 500-699 og hlutfall jákvæðra sýna er 5% eða meira, eða fullnægjandi upplýsingar liggja að öðru leyti ekki fyrir, óheimilt að koma til landsins þrátt fyrir að þeir fullnægi skilyrðum sem fram koma í 5. gr., sbr. 6. mgr. 29. gr. reglugerðar um för yfir landamæri og 106. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa fasta búsetu hér á landi, þ. á m. á grundvelli dvalarleyfis eða annars konar dvalar- eða búseturéttar.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um aðstandendur íslenskra ríkisborgara og útlendinga sem búsettir eru hér á landi.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem eru í nánu parsambandi, sem staðið hefur um lengri tíma, með íslenskum ríkisborgara eða útlendingi sem er löglega búsettur hér á landi.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem geta framvísað vottorði um bólusetningu eða vottorði um að COVID-19 sýking sé afstaðin í samræmi við 6. gr. reglugerðar um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Ákvæði 1. mgr. á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Einstaklinga og sendinefndir sem koma til landsins á vegum íslenskra stjórnvalda, starfsmenn sendiskrifstofa og aðra fulltrúa erlendra ríkja, starfsmenn alþjóðastofnana og einstaklinga í boði þeirra sem þurfa að koma til landsins vegna starfsemi þessara stofnana, fulltrúa herliðs, og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð og almannavörnum og fjölskyldur framangreindra aðila.
  7. Námsmenn.
  8. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna viðskipta eða starfa sem eru þess eðlis að þau er ekki hægt að framkvæma síðar eða erlendis.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í ákvæði til bráðabirgða við lög um útlendinga, sbr. 2. gr. laga nr. 23/2021 um breytingu á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga, öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 444/2021.

Dómsmálaráðuneytinu, 10. maí 2021.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.