Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

446/2024

Reglugerð um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu á stofnunum og í heimahúsum.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr.

Tilgangur reglugerðar þessarar er að tryggja samræmda og örugga framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á stofnunum og í heimahúsum.

2. gr.

Reglugerð þessi gildir um utankjörfundaratkvæðagreiðslu í kosningum til Alþingis og sveitarstjórna, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur sem fram fara:

  1. á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum, hér eftir einnig nefndar stofnanir,
  2. í heimahúsi ef kjósandi getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar.

3. gr.

Um kosningaathöfnina sjálfa, m.a. um heimild kjósanda til aðstoðar, fer skv. XII. kafla kosningalaga um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

II. KAFLI

Atkvæðagreiðsla á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum
fyrir fatlað fólk og í fangelsum.

4. gr.

Rétt til að greiða atkvæði utan kjörfundar á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum eiga eingöngu þeir kjósendur sem dveljast þar og eru þar til meðferðar, eru þar vistmenn eða heimilismenn. Aðrir eiga ekki rétt á að greiða þar atkvæði.

5. gr.

Atkvæðagreiðsla á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum skal fara fram sem næst kjördegi í samráði við fyrirsvarsmann viðkomandi stofnunar. Hún má ekki fara fram fyrr en 21 degi fyrir kjördag.

Kjörstjóra ber að kanna í samráði við fyrirsvarsmann hlutaðeigandi stofnunar og að fengnum upplýsingum um þá sem eru þar til meðferðar eða eru þar vistmenn eða heimilismenn, hvort ástæða sé til að láta atkvæðagreiðslu fara þar fram og þá hvenær.

Eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag skal kjörstjóri birta auglýsingu innan hlutaðeigandi stofnunar og þar sem venja er að birta opinberar auglýsingar, um það hvar atkvæðagreiðsla fer fram og á hvaða tíma. Kjörstjóri skal jafnframt tilkynna umboðsmönnum framboða og landskjörstjórn um atkvæðagreiðsluna.

Atkvæðagreiðslan skal hefjast og henni skal ljúka á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, að höfðu samráði við fyrirsvarsmann stofnunar. Miða skal við að atkvæðagreiðsla fari fram í eitt skipti á hverri stofnun, sbr. þó 6. og 7. gr., og þess gætt að öllum sem þess óska og rétt eiga á að greiða atkvæði gefist hæfilegt ráðrúm til að nýta sér auglýstan tíma.

6. gr.

Kjörstjóri skal gefa sjúklingum sem dvelja á eftirfarandi sjúkrahúsum og gátu ekki greitt atkvæði á fyrir fram auglýstum tíma, sbr. 5. gr., kost á að greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag:

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði
Sjúkrahúsinu á Akureyri
Heilbrigðisstofnun Austurlands í Neskaupstað
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ
Landspítalanum Fossvogi og við Hringbraut.

Kjörstjóri ákveður í samráði við fyrirsvarsmann hlutaðeigandi heilbrigðisstofnunar á hvaða tíma atkvæðagreiðslan fer þar fram. Að jafnaði skal atkvæðagreiðslunni lokið fyrir kl. 14. Um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna fer skv. 3. mgr. 5. gr.

Kjörstjóra er heimilt að fella niður atkvæðagreiðsluna skv. 1. mgr. ef fyrir liggur eftir samráð við fyrirsvarsmann hlutaðeigandi heilbrigðisstofnunar að ekki sé þörf á atkvæðagreiðslunni.

7. gr.

Kjörstjóri skal gefa þeim sem dvelja í eftirfarandi fangelsum og gátu ekki greitt atkvæði á fyrir fram auglýstum tíma, sbr. 5. gr., kost á að greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag:

Fangelsinu Hólmsheiði
Fangelsinu Litla-Hrauni
Fangelsinu Kvíabryggju
Fangelsinu Sogni

Kjörstjóri ákveður í samráði við forstöðumann hlutaðeigandi fangelsa á hvaða tíma atkvæðagreiðslan fer þar fram. Að jafnaði skal atkvæðagreiðslunni lokið fyrir kl. 14. Um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna fer skv. 3. mgr. 5. gr.

Kjörstjóra er heimilt að fella niður atkvæðagreiðsluna skv. 1. mgr. ef fyrir liggur eftir samráð fyrirsvarsmanns hlutaðeigandi fangelsis og kjörstjóra að ekki sé þörf á atkvæðagreiðslunni.

8. gr.

Hlutaðeigandi stofnun skal láta í té hentuga aðstöðu, svo og eftir atvikum aðstoðarfólk, þannig að atkvæðagreiðsla geti gengið sem greiðast fyrir sig og með fyrirskipuðum hætti. Kjósanda ber að koma á fund kjörstjóra þar sem atkvæðagreiðslan fer fram, og því aðeins má atkvæðagreiðsla fara fram á sjúkrastofu eða í herbergjum heimilismanna dvalarheimila og fatlaðs fólks eða vistmanna að verulegir annmarkar séu á að flytja kjósanda á fund kjörstjóra.

III. KAFLI Atkvæðagreiðsla í heimahúsum.

9. gr.

Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi, nema hann eigi þess kost að greiða atkvæði á stofnun skv. II. kafla.

10. gr.

Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg á þar til gerðu umsóknareyðublaði, sem landskjörstjórn birtir á vef sínum. Umsóknin skal studd vottorði lögráða manns um ástæðu fyrir umsókn. Skal umsóknin hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10 tveimur dögum fyrir kjördag.

Atkvæðagreiðslan skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, en má ekki fara fram fyrr en 21 degi fyrir kjördag.

IV. KAFLI Skil atkvæða.

11. gr.

Kjósandi, sem greiðir atkvæði hjá kjörstjóra á stofnun eða í heimahúsi, í umdæmi þar sem hann er á kjörskrá og skilur þar eftir umslag með atkvæði sínu, skal sjálfur láta atkvæðisbréf sitt í atkvæðakassa.

Við atkvæðagreiðslu hjá kjörstjóra á stofnun eða í heimahúsi skal atkvæðakassi innsiglaður af kjörstjóra og er umboðsmönnum heimilt að setja á hann innsigli sitt. Innsigli umboðsmanna skulu ekki hylja innsigli kjörstjóra. Að lokinni atkvæðagreiðslu er kjörstjóra heimilt að rjúfa innsigli atkvæðakassans og setja atkvæðisbréf í atkvæðakassa viðkomandi sveitarfélags. Heimilt er umboðsmönnum að vera viðstaddir þessa flokkun atkvæðabréfa.

Aðrir kjósendur skulu sjálfir annast sendingu atkvæðisbréfs síns til þess sveitarfélags þar sem þeir eru á kjörskrá. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst og greiða almennt póstburðargjald undir sendinguna. Kjósandi ber að öðru leyti sjálfur kostnað af sendingu atkvæðisbréfsins.

V. KAFLI Gildistaka.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 69. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 430/2022 um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu á stofnunum og í heimahúsum.

Dómsmálaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.