Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

446/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Til og með 15. júní 2020 er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins óháð því hvort þeir uppfylli skilyrði 5. gr., auk annarra skilyrða sem fram koma í 106. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi eða í öðru Schengen-ríki. Ákvæðið á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 14. maí 2020.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.