Dómsmálaráðuneyti

405/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vegabréfsáritanir, nr. 795/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 8 við reglugerðina:

  1. Í stað orðsins "Hvíta-Rússland" í I. mgr. kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Belarús.
  1. Í stað orðsins "Kongó" kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.
  1. Á eftir orðinu "Namibía" í I. mgr. kemur orðið: Naúrú.
  1. Í stað orðsins "Svasíland" í I. mgr. kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Esvatíní.
  1. Við II. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
    1. Handhafar diplómatískra vegabréfa, opinberra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Georgíu.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á I. mgr. viðauka 9 við reglugerðina:

  1. Í stað orðanna "Georgía (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum)" kemur: Georgía (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum) en þó ekki handhafar diplómatískra vegabréfa, opinberra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Georgíu, sbr. II. mgr. viðauka 8.
  1. Á eftir orðinu "Kósóvó" kemur: (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum).
  1. Orðið "Nárú" fellur brott.
  1. Í stað orðsins "Austur-Tímor" kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Tímor-Leste.

3. gr.

Í stað orðanna "þjónustuvegabréfa frá Indlandi" í 7. tl. II. mgr. viðauka 9 við reglugerðina kemur: opinberra vegabréfa frá Indlandi.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 7. apríl 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 28. apríl 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica