Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

347/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 148/2000, með síðari breytingum.

1. gr.

1. og 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. reglugerð nr. 344/2015, orðast svo:

Verð hlutamiða í hvorri flokkaröð skal vera 20.400 kr. ef keyptur er miði sem gildir í öllum 12 flokkum happdrættisársins sem er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

Verð miða fyrir hvern flokk er 1.700 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16/1973, með síðari breytingum, öðlast gildi 20. apríl 2019.

Dómsmálaráðuneytinu, 28. mars 2019.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.