Atvinnuvegaráðuneyti

964/2026

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 870/2026 um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2026/2027 og almanaksárið 2027.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður í töflu í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

Tegund Ráðlagður heildarafli Frádrag vegna heimilda erlendra ríkja og annarra ráðstafana Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar
Úthafsrækja 3.246 0 3.246 172 3.074

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, 2. og 30. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996, 19. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, og 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 3. september 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Hjalti Guðmundsson.

B deild - Útgáfudagur: 8. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica