Atvinnuvegaráðuneyti

512/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1571/2025 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1803 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1331 frá 9. júlí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1803 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) 1, 7, 9 og 10 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 7. Reglugerðin er felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 324/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 10, 12. febrúar 2026, bls. 740-746.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, skal gilda fyrir félög sem skylt er, eða nýta sér heimild til, að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica