723/2026
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1159 frá 7. febrúar 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/6 með því að mæla fyrir um reglur um viðeigandi ráðstafanir til að tryggja skilvirka og örugga notkun dýralyfja sem eru leyfð og sem er ávísað til inngjafar um munn með öðrum aðferðum en notkun á lyfjablönduðu fóðri og sem umsjónarmaður dýra gefur dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 272/2025 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1159 frá 7. febrúar 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/6 með því að mæla fyrir um reglur um viðeigandi ráðstafanir til að tryggja skilvirka og örugga notkun dýralyfja sem eru leyfð og sem er ávísað til inngjafar um munn með öðrum aðferðum en notkun á lyfjablönduðu fóðri og sem umsjónarmaður dýra gefur dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026, bls. 36.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við XII. kafla og 45. gr. laga um dýralyf, nr. 14/2022, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, og 78. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 18. og 19. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 74. gr. laga um dýralyf, nr. 14/2022 og 17. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 24. júní 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 26. júní 2026