Atvinnuvegaráðuneyti

514/2026

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 137/2025 um efniviði og hluti úr endurunnu plasti, sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tl., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2269 frá 12. nóvember 2025 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2022/1616 að því er varðar merkingu á endurunnu plasti, þróun endurvinnslutækni og yfirfærslu á leyfum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 145.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica