Sjávarútvegsráðuneyti

520/2007

Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði 2007. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 15. júní til 31. júlí 2007, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnessvita. Við veiðar á þessu svæði skal varpa skipanna búinn seiðaskilju sbr. reglugerð nr. 396, 22. apríl 2005, með síðari breytingum. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafsrækjuafla skipsins.

2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 515, 12. júní 2007, um rækjuveiðar á Breiðafirði 2007.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 15. júní 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica