Sjávarútvegsráðuneyti

611/2007

Reglugerð um takmarkanir á heimild til veiða á kröbbum. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar á kröbbum í gildrur í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar. Ráðuneytinu er þó heimilt að veita tímabundin leyfi til tilraunaveiða á kröbbum samkvæmt 13. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum.

2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. júní 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica