1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB gerðir gildi hér á landi:
a) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2028/2006 frá 18. desember 2006 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 600/2005 að því er varðar leyfi til að nota í fóðri aukefnablöndu með Bacillus licheniformis DSM 5749 og Bacillus subtilis DSM 5750 sem eru í flokknum örverur. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2007 frá 13. desember 2007.
b) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 188/2007 frá 23. febrúar 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á Saccharomyces cerevisiae (Biosaf SC 47) sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2007 frá 13. desember 2007.
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl I og II við reglugerð þessa.
3. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
4. gr.
Reglugerð þessi sem er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. júlí 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)