Landbúnaðarráðuneyti

974/2005

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur og á grundvelli viðauka IV A við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollnúmeri:

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01 - 31.12.2006

13.000

0

0

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabilsins. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal láta hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2006.

Landbúnaðarráðuneytinu, 16. nóvember 2005.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica