Sjávarútvegsráðuneyti

67/2006

Reglugerð um loðnuveiðar íslenskra skipa á vetrarvertíð 2006. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða íslenskra skipa á tímabilinu frá 31. janúar 2006 til og með 30. apríl 2006.

2. gr.

Aðeins skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.

Leyfilegur hámarksafli íslenskra loðnuveiðiskipa á loðnuvertíðinni er 47.219 lestir.

3. gr.

Skipstjóri veiðiskips skal í skeyti tilkynna áætlaðan loðnuafla til veiðieftirlits Fiskistofu, strax þegar skip heldur til lands til löndunar afla. Skal tilgreina í tilkynningu reit þar sem afli er fenginn.

Óheimilt er að dæla afla úr nót veiðiskips um borð í flutningaskip eða vinnsluskip eða flytja óvigtaðan afla milli skipa nema með sérstöku leyfi Fiskistofu. Fái loðnuskip það stórt kast, að skipið beri ekki allan þann afla sem er í nótinni er þó heimilt að dæla eftirstöðvum aflans úr nótinni um borð í annað veiðiskip, enda hafi bæði skipin aflamark í loðnu.

Öllum loðnuafla skal landað innanlands og hann veginn í innlendri höfn. Þó er Fiskistofu heimilt að veita leyfi til löndunar á loðnu til bræðslu og heilfrystri loðnu erlendis sé talið tryggt að vigtun og skráning afla fari fram með fullnægjandi hætti.

4. gr.

Frá kl. 12.00 6. febrúar 2006 er aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 67° 11¢ N - 14° 30¢ V
2. 68° 00¢ N - 14° 30¢ V
3. 68° 00¢ N - 10° 00¢ V
4. 65° 15¢ N - 10° 00¢ V
5. 65° 15¢ N - 11° 20¢ V
6. 66° 05¢ N - 11° 30¢ V
7. 66° 15¢ N - 12° 00¢ V
8. 66° 12¢ N - 12° 22¢ V
9. 66° 40¢ N - 12° 40¢ V
10. 66° 47¢ N - 13° 00¢ V
11. 66° 52¢ N - 13° 08¢ V
12. 67° 11¢ N - 14° 30¢ V

Ráðuneytið getur takmarkað eða bannað loðnuveiðar á ákveðnum svæðum í tiltekinn tíma þyki ástæða til þess, m.a. vegna verndunarsjónarmiða og til þess að stuðla að sem bestri hagnýtingu loðnustofnsins. Jafnframt getur ráðherra ákveðið að aðeins stundi loðnuveiðar í tilraunaskyni ákveðinn fjöldi skipa í því skyni að kanna ástand loðnu­stofnsins undir eftirliti Hafrannsóknastofnunarinnar.

Hafrannsóknastofnuninni er heimilt að grípa til skyndilokunar veiðisvæða, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fari hlutfall loðnu, smærri en 14 cm, yfir 20%, miðað við fjölda. Stærð loðnu er mæld frá trjónuoddi að sporðsenda.

5. gr.

Með mál sem rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 31. janúar 2006.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica