Sjávarútvegsráðuneyti

253/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 201, 16. mars 2006, um veiðar úr úthafskarfastofninum 2006. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir "íslenskra skipa" í 1. málslið 1. gr. bætist: "vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar".

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. mars 2006.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Stefán Ásmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica