Sjávarútvegsráðuneyti

457/2006

Reglugerð um bann við línuveiðum við Bjarneyjarál í Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 2. júní til og með 31. júlí 2006 eru allar línuveiðar bannaðar á svæði við Bjarneyjarál í Breiðafirði, sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1.

65°20,00′N., 23°34,00′V.

2.

65°13,00′N., 23°28,00′V.

3.

65°11,00′N., 23°19,00′V.

4.

65°10,00′N., 23°18,00′V.

5.

65°08,00′N., 23°26,00′V.

6.

65°09,00′N., 23°39,00′V.

7.

65°16,00′N., 23°41,00′V.



2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 31. maí 2006.

F. h. r.
Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica