Iðnaðarráðuneyti

831/2006

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2422/2001 frá 6. nóvember 2001 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2004, frá 3. desember um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2422/2001 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2422/2001 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði, merkt fylgiskjal I, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IV. viðauka við EES-samninginn, nr. 167/2004, frá 3. desember 2004, merkt fylgiskjal II.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. gr. laga nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Iðnaðarráðuneytinu, 15. september 2006.

Jón Sigurðsson.

Kristján Skarphéðinsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica