Sjávarútvegsráðuneyti

976/2006

Reglugerð um friðunarsvæði í Arnarfirði vegna fóðrunar- og eldisrannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. nóvember 2006 til og með 31. janúar 2007 eru allar veiðar í Arnarfirði bannaðar milli 23°40¢ V og 23°48¢ V. Að norðan og sunnan markast svæðið af fjöruborði.

Þrátt fyrir 1. mgr. er Hafrannsóknastofnuninni heimilt að stunda eða láta stunda veiðar á svæðinu í rannsóknaskyni.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 419, 2. maí 2005, um friðunarsvæði í Arnarfirði vegna fóðrunar- og eldisrannsókna Hafrannsókna­stofnunar­innar, ásamt síðari breytingum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. nóvember 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica