Sjávarútvegsráðuneyti

576/2004

Reglugerð um togveiðar á kolmunna 2004. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í fiskveiðilögsögu Íslands og í lögsögum þeirra landa, þar sem íslensk skip hafa rétt til að veiða samkvæmt samningum. Á árinu 2004 er íslenskum skipum heimilt að veiða 713 þús. lestir af kolmunna og skal Fiskistofa skipta því heildarmagni milli þeirra á grundvelli aflahlutdeildar þeirra.


2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.


3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30' V og innan línu fyrir Suður-og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 63°05,90 N - 20°30,00 V
2. 63°11,40 N - 19°07,30 V
3. 63°07,50 N - 18°38,00 V
4. 63°09,00 N - 18°27,00 V
5. 63°07,00 N - 18°02,00 V
6. 63°12,50 N - 17°00,00 V
7. 63°20,00 N - 16°03,00 V
8. 63°22,50 N - 15°51,00 V
9. 63°26,00 N - 15°29,00 V
10. 63°30,70 N - 15°00,00 V
11. 63°33,60 N - 14°41,70 V
12. 63°43,40 N - 13°53,00 V
13. 64°00,00 N - 13°07,00 V
14. 64°21,70 N - 12°17,30 V
15. 64°32,30 N - 11°41,00 V
16. 65°00,00 N - 11°28,00 V
17. 65°27,00 N - 11°24,00 V
18. 65°32,51 N - 11°25,55 V
19. 65°37,50 N - 12°57,61 V
20. 65°50,56 N - 12°57,61 V
21. 66°00,00 N - 12°51,80 V
22. 66°03,00 N - 12°36,80 V
23. 66°14,00 N - 12°40,00 V
24. 66°23,00 N - 12°51,00 V
25. 66°33,16 N - 13°23,43 V
26. 66°41,65 N - 12°51,09 V
og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar.


4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar sbr. reglugerð nr. 303/1999 um afladagbækur. Þar skal fram koma m.a. veiðisvæði, veiðitími og afli í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðarmót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,05


5. gr

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.


6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.


7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 477/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.


8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan kolmunnaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram kolmunnaafli skipsins sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Færeyja.


9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Þó er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla til bræðslu í fiskimjölsverksmiðju í erlendri höfn, enda liggi fyrir að eftirlit með löndun og vigtun sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri senda Fiskistofu staðfest afrit af vigtarnótu. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 522/1998, um vigtun sjávarafla með síðari breytingum.


10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 270, 17. mars 2004, um togveiðar á kolmunna.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. júlí 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica