Sjávarútvegsráðuneyti

484/2004

Reglugerð um bann við kolmunnaveiðum út af Suðausturlandi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 16. júní 2004, eru allar veiðar á kolmunna bannaðar út af Suðausturlandi á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 64° 32´30 N - 11° 41´00 V
2. 64° 37´00 N - 10° 51´00 V
3. 64° 17´00 N - 10° 34´00 V
4. 64° 04´00 N - 11° 04´00 V
5. 63° 45´00 N - 10° 40´00 V
6. 63° 30´00 N - 10° 55´00 V
7. 63° 17´00 N - 11° 20´00 V
8. 63° 26´00 N - 11° 55´00 V
9. 63° 43´40 N - 13° 53´00 V
10. 64° 00´00 N - 13° 07´00 V
11. 64° 21´70 N - 12° 17´30 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 334, 12. maí 2003, um bann við kolmunnaveiðum á Þórsbanka.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 9. júní 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica