Sjávarútvegsráðuneyti

202/2004

Reglugerð um friðun blálöngu á hrygningartíma. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 15. febrúar til 30. apríl eru allar veiðar með fiskibotnvörpu og línu óheimilar á eftirgreindum svæðum:
1. Suður af Vestmannaeyjum:

1. 62° 58´90 N – 20° 22´00 V
2. 63° 00´00 N – 20° 27´00 V
3. 62° 50´00 N – 20° 27´00 V
4. 62° 50´00 N – 20° 00´00 V
5. 63° 00´00 N – 20° 00´00 V

2. Á Franshól:

1. 61° 03´00 N - 27° 39´73 V
2. 61° 03´00 N - 27° 28´00 V
3. 60° 59´00 N - 27° 28´00 V

Suðurmörk svæðisins afmarkast af 200 sjómílna fiskveiðilandhelgi Íslands.


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 10. mars 2004 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 5. mars 2004.

Árni M. Mathiesen.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica