Sjávarútvegsráðuneyti

40/2004

Reglugerð um bann við línuveiðum á norðanverðum Faxaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 17. janúar til 15. mars 2004 eru allar línuveiðar bannaðar á svæði sem afmarkast af landi og línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 64° 44´50 N - 23° 39´00 V
2. 64° 41´30 N - 23° 39´00 V
3. 64° 39´00 N - 22° 57´00 V
4. 64° 31´00 N - 23° 04´00 V
5. 64° 30´00 N - 22° 57´00 V
6. 64° 35´00 N - 22° 52´00 V
7. 64° 37´00 N - 22° 44´00 V
8. Þormóðssker
9. 64° 27´60 N - 22° 11´32 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 15. janúar 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica