Sjávarútvegsráðuneyti

498/2000

Reglugerð um sérstaka úthlutun skv. 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990,til báta, sem stunda veiðar á innfjarðarækju. - Brottfallin

1. gr.

Vegna skerðinga, sem urðu á leyfilegum heildarafla í rækju á innfjarðasvæðum þ.m.t. Eldeyjarsvæði á fiskveiðiárinu 1999/2000, skal á fiskveiðiárinu 2000/2001 úthluta aflamarki sem nemur samtals 1.292 þorskígildum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju.

 

2. gr.

Við útreikning uppbóta skal miðað við, að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1993/1994 - 1998/1999. Ekki skal koma til uppbóta samkvæmt reglugerð þessari hafi meðaltalsaflamark báta í innfjarðarækju á einstökum svæðum verið 52,5 lestir eða hærra á fiskveiðiárinu 1999/2000.

Uppbætur samkvæmt 1. ml. 1. mgr. skulu þó skerðast hlutfallslega miðað við lækkun á leyfilegum þorskafla milli fiskveiðiáranna 1999/2000 og 2000/2001. Hafi komið til úthlutunar uppbóta á tilteknu svæði á fiskveiðiárinu 1999/2000, samkvæmt reglugerð nr. 519/1999, skulu uppbætur á því svæði þar að auki lækka um þriðjung á fiskveiðiárinu 2000/2001.

 3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar, sem þeir hafa í rækju á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún var 1. ágúst 2000. Uppbæturnar skuli skiptast á eftirgreindar tegundir: þorsk, ýsu, ufsa og steinbít í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum og verðmætastuðla.

 

4. gr.

Reglugerð þessi sem er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. júlí 2000.

 

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica