Landbúnaðarráðuneyti

857/2002

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur og á grundvelli viðauka IV A við tollalög nr. 55/1987 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
Úr tollnúmeri:
kg
%
kr./kg
0406.3000 Smurostur
01.01.2003 - 31.12.2003
13.000
0
0


Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Tollkvótum er úthlutað skv. auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal láta hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt sé ákvæði reglugerðar nr. 416/2002 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.


4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 65. gr. og 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til 1. janúar 2004.


Landbúnaðarráðuneytinu, 9. desember 2002.

F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica