Landbúnaðarráðuneyti

699/2002

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á rjúpum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum IV A, við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 75. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
Tollnúmer:
kg
%
kr./kg
0208.9003 Rjúpur, frystar
15.10.02-31.12.02
ótilgr.
0
0


Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 416/2002 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.


4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 53. gr. og 70. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 53. gr., 53. gr. A og 75. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir til 1. janúar 2003.


Landbúnaðarráðuneytinu, 14. október 2002.

Guðni Ágústsson.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica