Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 75. gr. laga nr. 99/1993.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil
|
Vörumagn
|
Verðtollur
|
Magntollur
|
|
Tollnúmer: |
kg
|
%
|
kr./kg
|
||
0407.0000 | Frjóegg (af tegund Gallus domesticus) |
01.02.-31.12.01
|
ótilgr.
|
0
|
77
|
0404.9000 | Annað (mysuduft) |
01.02.-31.12.01
|
ótilgr.
|
0
|
5
|
Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.