Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2026, frá 30. apríl 2026, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1004 frá 22. janúar 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með því að koma á fót tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins fyrir matvælabætandi efni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 299.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995 og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 29. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Donika Kolica.
B deild - Útgáfudagur: 1. júní 2026