200/2026
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju.
1. gr.
Á eftir orðunum "Vegna beingreiðslna" í b-lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: C í formi niðurgreiðslu.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:
- 4. mgr. verður svohljóðandi: Framleiðendur sem ekki hafa tekið við beingreiðslum á árinu á undan þurfa að sækja sérstaklega um beingreiðslur til ráðuneytisins. Þeir skulu skila áætlun fyrir 15. febrúar, þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á komandi ári og upplýsingar um hvort ræktun sé með raflýsingu eða með öðrum hætti, ásamt upplýsingum um hámarksorkuþörf og kostnað við dreifingu og flutning.
- 5. mgr. verður svohljóðandi: Framleiðendur sem tóku við beingreiðslum á árinu á undan þurfa ekki að skila áætlun fyrir 15. febrúar ár hvert, nema breytingar hafi orðið í framleiðslu síðasta árs. Feli áætlun í sér meira en 10% frávik frá framleiðslu síðasta árs skal gera sérstaka grein fyrir henni. Einnig skal liggja fyrir fullnaðaruppgjör vegna ársins á undan áður en beingreiðslur fást greiddar vegna næsta árs.
- Á eftir orðunum "skv. 4." í 6. mgr. kemur: og 5. mgr.
3. gr.
Á eftir orðunum "Fyrsti gjalddagi er" í 1. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: eigi síðar en.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:
- 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
- Orðið "áætluðum" í 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
5. gr.
Fyrirsögn IV. kafla reglugerðarinnar verður: Beingreiðslur C vegna flutnings- og dreifikostnaðar raforku.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. reglugerðarinnar:
- Fyrirsögn greinarinnar verður: Skilyrði fyrir beingreiðslum C.
-
Á eftir orðinu beingreiðslur í 1. mgr. kemur: C.
7. gr.
Fyrirsögn 18. gr. reglugerðarinnar verður: Hámark beingreiðslna C.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. verður svohljóðandi: Beingreiðsla C skal áætluð miðað við ársnotkun raforku árið á undan eða áætlaða notkun á grundvelli upplýsinga um áætlað framleiðslumagn hverrar ræktunartegundar eftir framleiðslustað, upplýsingar um á hve mörgum fermetrum hver ræktunartegund verður ræktuð og hve stór hluti þess svæðis notast við gróðurhúsalýsingu og tegund lýsingar. Beingreiðsla C vegna raforku skal nema allt að 75% af raunkostnaði vegna lýsingar í hverjum mánuði. Ráðuneytinu er heimilt að halda eftir 20% af framlögum vegna beingreiðslna við gerð ársáætlunar.
- 2. mgr. fellur brott.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðunum "staðfest af löggiltum endurskoðanda" í 1. málsl. kemur: eða viðurkenndum bókara.
- Í stað "beingreiðslur vegna flutnings- og dreifikostnaðar raforku greiddar á MWh." í 5. málsl. kemur: beingreiðslur C vegna flutnings- og dreifikostnaðar raforku eru greiddar miðað við raunkostnað.
10. gr.
Á eftir orðunum "í Jörð" í 1. mgr. 22. gr. reglugerðarinnar kemur: eða Afurð.
11. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum, nr. 99/1993, 29. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, og 46. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Reglugerðin öðlast gildi 1. mars 2026.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 27. febrúar 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 27. febrúar 2026