Atvinnuvegaráðuneyti

1203/2025

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 34. töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1112 frá 4. júní 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að færa naríngenín og 2-metýl-1-(2-(5-(p-tólýl)-1H-imídasól-2-ýl)píperídín-1-ýl)bútan-1-ón á skrá Sambandsins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 25. september 2025, bls. 482.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 24. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica