1237/2025
Reglugerð um (27.) breytingu á reglugerð nr. 397/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem tilgreind eru í ii. og iii. viðauka við reglugerð evrópuþingsins og ráðsins (eb) nr. 1333/2008.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/652 frá 2. apríl 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á stevíólglýkósíðum sem eru framleidd með gerjun með því að nota Yarrowia lipolytica. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 463.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/666 frá 4. apríl 2025 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á natríumkarboxýmetýlsellulósa, sellulósagúmmíi (E 466) og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar fyrir sellulósa (E 460), metýlsellulósa (E 461), etýlsellulósa (E 462), hýdroxýprópýlsellulósa (E 463), hýdroxýprópýlmetýlsellulósa (E 464), etýlmetýlsellulósa (E 465), natríumkarboxýmetýlsellulósa, sellulósagúmmí (E 466), víxltengdan natríumkarboxýmetýlsellulósa, víxltengt sellulósagúmmí (E 468) og karboxýmetýlsellulósa sem er vatnsrofinn með ensími (E 469). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 206/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 469.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 27. nóvember 2025