Tvær síðustu málsgreinar í töflu I í viðauka II við reglugerðina orðast svo:
Hver aðalflokkur skiptist í þrjá undirflokka með plús og mínus (efri, miðju, neðri). Matvælastofnun ákveður fjölda undirflokka í samráði við hagsmunaaðila. Við gildistöku reglugerðarinnar verða þessir 13 flokkar í notkun:
E, U+, U, U-, R+, R, R-, O+, O, O-, P+, P, P-
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 13. gr. f laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. júní 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
B deild - Útgáfudagur: 16. september 2025