12. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Handhafi greiðslumarks getur óskað eftir innlausn á greiðslumarki á greiðslumarkaði haustið 2025. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna árið 2026. Bjóða skal til sölu það greiðslumark sem er innleyst á innlausnarverði. Miðað er við stýrivexti Seðlabanka Íslands 1. janúar 2025 og greiðslur frá þeim tíma. Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að öllu greiðslumarki sem er í boði á markaðnum. Það skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall. Framleiðandi í forgangshópi getur ekki fengið hærri úthlutun ærgilda en sem nemur því að ásetningshlutfall eftir úthlutun fari niður í 1,0. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til framleiðenda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum.
Vegna forgangsröðunar er tekið mið af stöðu framleiðenda 1. janúar. Þó er heimilt að miða við stöðu framleiðanda á markaðsdegi ef hann telst vera nýliði, sbr. 2. gr. og hefur skilað haustskýrslu í Bústofn vegna næsta framleiðsluárs sem jafnframt er fyrsta framleiðsluár hans.
Ríkið innleysir það greiðslumark sem ekki selst. Þau ærgildi falla niður og skal framkvæmdanefnd búvörusamninga ráðstafa fjármagni vegna þeirra á liðinn framleiðslujafnvægi.
Markaðinn með greiðslumark skal halda 15. nóvember 2025. Skilafrestur á beiðnum um innlausn og kaup á greiðslumarki er 1. nóvember 2025. Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki er 15. desember 2025. Viðskipti með ærgildi sem ekki eru greidd innan greiðslufrests falla niður. Með beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. janúar 2026.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum, nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 16. júní 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
B deild - Útgáfudagur: 10. júlí 2025