Atvinnuvegaráðuneyti

540/2025

Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr töluliður, 31. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2856 frá 12. nóvember 2024 um breyt­ingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að taka bragðefnið bensen-1,2-díól (FL-nr. 04.029) af skrá Sambandsins. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 572.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica