Atvinnuvegaráðuneyti

538/2025

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 287/2020 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1602 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar samræmt heilbrigðis- og innflutningsskjal sem fylgir sendingum af dýrum og vörum á ákvörðunarstað.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 2. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/950 frá 15. janúar 2024 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/1602 að því er varðar framkvæmdar­dagsetningu og tilvik þar sem þess er krafist að tollyfirvöld dragi magn sem gefið er upp í tollskýrslu frá leyfða heildarmagninu sem er tilkynnt í samræmda heilbrigðis- og innflutn­ingsskjalinu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 401.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica