Atvinnuvegaráðuneyti

410/2025

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 201/2021 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/354 um að taka saman skrá um fyrirhugaða notkun fóðurs sem er ætlað til sérstakra, næringarlegra nota.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2899 frá 20. nóvember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2020/354 um að taka saman skrá um fyrirhugaða notkun fóðurs sem er ætlað til sérstakra, næringarlegra nota. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 382.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica