Matvælaráðuneyti

322/2024

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 188/2020, um veiðar á humri.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina orðist svo:

Allar veiðar á humri í fiskveiðilandhelgi Íslands eru bannaðar frá og með 16. mars 2024 til og með 15. mars 2026.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2024.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica