Matvælaráðuneyti

1037/2022

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/913 frá 30. maí 2022 um breyt­ingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið og um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2246 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 30. ágúst 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica