Matvælaráðuneyti

939/2022

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 26. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1916 frá 3. nóvember 2021 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að færa 4-amínó-5-(3-(ísóprópýlamínó)-2,2-dímetýl-3-oxóprópoxý)-2-metýlkínólín-3-karboxýl­sýru á skrá Sambandsins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 455.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 28. júní 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica