Matvælaráðuneyti

441/2022

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 25. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/899 frá 3. júní 2021 um breytingu á reglu­gerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar umbreytingarráðstafanir varðandi útflutning á kjöt‑ og beinamjöli sem eldsneyti til brennslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samning­inn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. febrúar 2022, bls. 170.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 12. apríl 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica