Menningar- og viðskiptaráðuneyti

402/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 1277/2016.

1. gr.

Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. a. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er leyfis­veitanda í slíkum tilvikum jafnframt heimilt að gefa út rekstrarleyfi.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 1. janúar 2023.

 

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 31. mars 2022.

 

F. h. r.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Heimir Skarphéðinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica