Matvælaráðuneyti

401/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 964/2019, um veiðar á rækju.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo:

Allar veiðar á rækju í Ísafjarðardjúpi eru bannaðar frá og með 30. mars 2022 til og með 31. ágúst 2022.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2022.

 

Matvælaráðuneytinu, 30. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica