Matvælaráðuneyti

335/2022

Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 25. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1532 frá 17. september 2021 um breyt­ingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar færslu 3-(1-((3,5-dímetýlísoxasól-4-ýl)metýl)-1H-pýrasól-4-ýl)-1-(3-hýdroxýbensýl)imída­sólidín-2,4-díóns á skrá Sambandsins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 329/2021, frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 1222.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 3. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica