Matvælaráðuneyti

334/2022

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, 39. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/461 frá 16. mars 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar dagsetningu fyrir móttöku beiðna um viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar jafngildi sam­kvæmt fyrirkomulagi á innflutningi lífrænt ræktaðra vara sem byggist á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 326/2021, frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 697.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðar­framleiðslu.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðar­framleiðslu.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 3. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica