Matvælaráðuneyti

278/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

1. gr.

1. málsliður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar á eftirfarandi veiðisvæðum humars frá og með 16. mars 2022 til og með 15. mars 2024:

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 173/2021 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020, um tímabundið bann við veiðum með fiski­botnvörpu á veiðisvæðum humars.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica