Menningar- og viðskiptaráðuneyti

187/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 1277/2016.

1. gr.

Í stað 25. gr. a. reglugerðarinnar kemur ný grein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði g-liðar 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2007 skal leyfisveitandi ekki afturkalla þegar útgefið rekstrarleyfi þegar umsækjandi, forsvarsmaður umsækjanda, leyfishafi eða forsvarsmaður leyfishafa skulda samanlagt allt að 20.000.000 kr. í skatta og opinber gjöld. Framan­greint er háð því skilyrði að í gildi sé greiðsluáætlun milli framangreindra aðila og innheimtu­manns ríkissjóðs um niðurgreiðslu skuldar. Leyfishafi skal leggja fram fullnægjandi tryggingu í formi ábyrgðaryfirlýsingar viðskiptabanka eða sparisjóðs vegna skuldar sem er umfram 10.000.000 kr. Í ábyrgðaryfirlýsingu skal koma fram að ábyrgð sé ótímabundin og nái yfir skuldir við innheimtumann ríkissjóðs umfram 10.000.000 kr. og allt að 20.000.000 kr. komi til gjaldþrots leyfishafa. Yfir­lýs­inguna skal afhenda leyfisveitanda til varðveislu. Komi til greiðsluskyldu sam­kvæmt yfirlýsing­unni skal leyfisveitandi afhenda hana til innheimtumanns ríkissjóðs til innheimtu í því umdæmi þar sem starf­semi leyfishafa fer fram.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 1. janúar 2023.

 

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 11. febrúar 2022.

 

Lilja D. Alfreðsdóttir
menningar- og viðskiptaráðherra.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica