Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. nóv. 2022

1662/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1164/2021 um loðnuveiðar norskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu 2021/2022.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 145.383 tonn í fiskveiðilandhelgi Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands norðan við 64°30´N.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2021.

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.