Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

1287/2021

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 86. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/621 frá 15. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið imídaklópríð með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 203/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 178.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. nóvember 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.