Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 26. apríl 2022

858/2021

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 420/2021, um strandveiðar fiskveiðiárið 2020/2021.

1. gr.

1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Í maí, júní, júlí og ágúst 2021 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 11.171 tonn af þorski, 1.000 tonn af ufsa og 100 tonn af gullkarfa eða samtals 12.271 tonn af óslægðum botnfiski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. júlí 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.