Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 11. maí 2022

643/2021

Reglugerð um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 að því er varðar orkumerkingar ljósgjafa og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 874/2012.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 4x í kafla IV í II. viðauka og lið 11x í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2021, frá 19. mars 2021, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2015, frá 11. mars 2019, um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 að því er varðar orkumerkingar ljósgjafa og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 874/2012.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 4x í kafla IV í II. viðauka og á eftir lið 11x í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 348/2021, frá 10. desember 2021, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/340 frá 17. desember 2020 um breytingu á framseldum reglugerðum (ESB) 2019/2013, (ESB) 2019/2014, (ESB) 2019/2015, (ESB) 2019/2016, (ESB) 2019/2017 og (ESB) 2019/2018 að því er varðar kröfur um orkumerkingar rafeindaskjáa, þvottavéla til heimilisnota og þvottavéla með þurrkara til heimilisnota, ljósgjafa, kælitækja, uppþvottavéla til heimilisnota og kælitækja sem eru notuð við beina sölu.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2015 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34/2021, 12. maí 2021, bls. 205.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2021/340 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10/2021, 16. febrúar 2022, bls. 816.

3. gr.

Eftirtalin reglugerð er felld brott: Reglugerð nr. 832/2013, um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 874/2012, frá 12. júlí 2012, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar rafmagnsljósapera og lampa.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.